Post date: Sep 25, 2011 11:53:51 AM
Viðhaldsframkvæmdum á Lækjarbakkavegi er lokið.
Óhætt er að segja að vegurinn hafi tekið miklum breytingum eins og eftirfarandi myndir sýna.
Helstu verkliðir voru eftirfarandi:
Lýsing
Upphækkun á vegi frá Lækjarbakka 1 að Búrfellsvegi. Vegtengingin færist jafnframt nokkra metra til austurs þannig að hún lendi eins nálægt hæsta punkti á þjóðveginum og kostur er.
Lagfæring á ræsi undir veg fyrir neðan Lækjarbakka 2 (grjóthleðsla og ofaníburður).
Lagfæring á vegi meðfram lóðum Lækjarbakka 7 og 9 og setja undir hann ræsi.
Lagfæring á undirlagi annars staðar á veginum eftir þörfum og vatnshalli lagaður til að draga úr skemmdum af völdum vatnsrennslis.
Ofanálag á allan veginn ásamt þjöppun og sléttun. Samið hefur verið við verktakann þannig að ef þörf er á meira undirlagi en áætlanir gera ráð fyrir þá verði dregið úr magni í yfirlag á móti þannig að kostnaðaráætlun standist. Ofanálag yrði þá borið þykkast þar sem umferð er mest og svo þynnri í endana (og svo yrði bætt í yfirlag síðar).
Staða
Klárað
Klárað
Klárað
Klárað að mestu.
Smáframkvæmdir við efsta hluta vegarins og botnlanga bíða næsta árs.
Borið var á eins mikið af veginum og sjóðsstaða félagsins leyfði. Það bíður næsta árs að bera á efsta hluta vegarins og botnlanga.
Ljósmynd
Fyrir þá sem ekki muna þá fylgir með mynd af veginum eins og hann var fyrir (smellið til að sjá stærri mynd).