Post date: May 28, 2013 3:11:19 PM
Boðað er til aðalfundur Lækjarbakka, félags sumarhúsaeigenda við Lækjarbakka í GrímsnesiSamkvæmt lögum félagsins skal aðalfundur haldinn árlega og vera boðaður með minnst tveggja viku fyrirvara.
Félagsmenn eru allir þeir sem eiga sumarhús eða óbyggt sumarhúsaland í landi Lækjarbakka.
Á fundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverju sumarhúsi eða óbyggðri lóð.
Dagsetning: Fimmtudagurinn 13. júní klukkan 20:00
Fundarstaður: Verzlunarskóli Íslands (gengið inn um inngang beint á móti Borgarleikhúsinu).
Fundarefni:
Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins (Ólafur Þór Gylfason, formaður),
staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar (Jón Trausti Snorrason, gjaldkeri),
kosning formanns til tveggja ára,
kosning ritara (óskað er sérstaklega eftir framboðum í embættið þar sem Þórður hyggst stíga til hliðar),
kosning skoðunarmanna ársreikninga og varamanns,
framlagning rekstraráætlunar fyrir næsta ár (vegna viðhalds og almenns rekstrar),
ákvörðun um árgjald félagsins vegna viðhalds og almenns rekstrar,
framlagning og umræður um framkvæmdaáætlun (nýframkvæmdir) fyrir komandi ár (ekki liggja fyrir tillögur um nýframkvæmdir á svæðinu er á fundinum verður dreift kostnaðaráætlun um sauðfjárgirðingu til almennrar umræðu),
ákvörðun um framkvæmdagjald vegna nýframkvæmda skv. framkvæmdaáætlun,
önnur mál
Athygli er vakin á að rétt til fundarsetu hafa félagsmenn, makar þeirra og sambúðaraðilar. Félagsmaður má veita sérhverjum lögráða manni umboð til að mæta á fundi og greiða atkvæði fyrir sína hönd. Skal umboðsmaður leggja fram á fundinum skriflegt og dagsett umboð. Eitt atkvæði fylgir hverri lóð undir frístundahús.
Stjórnin